..Sæta langa sumardaga..
..Sæta langa sumardaga..
föstudagur, 23. september 2011
Þórdís Claessen sýnir grafísk myndverk frá 23. september til 20. október.
„Sæta langa sumardaga“ er sjöunda einkasýning Þórdísar á grafískum myndverkum.
Þórdís Claessen (f. 1974) er grafískur hönnuður og starfar hjá Claessen & Van Deurs efh. Hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands vorið 2001 og stundaði listasögunám við Columbia University í New York.
Rauði þráður sýningarinnar eru góðar stundir forfeðranna frá liðinni tíð, endurblandaðar með líflegum blæ.
Myndirnar eru fengnar úr gömlum fjölskyldualbúmum nokkurra kyn-slóða aftur í tímann. Í myndverkunum eru samsettar ýmsar fjörlegar uppákomur og stundin endursköpuð á nýjan veg.
– Íslensk sveitarómantík, blóðrautt sólarlag, glettni og dísæt sumar-kvöld í sveitum – sem óður til góðra minninga.
Nánari upplýsingar um Þórdísi má finna á vefslóðinni www.thordis.com
Sýningin er sölusýning og er hver mynd gerð í einu tölusettu upplagi.
Verðlisti: 50x50 = 50.000 // 50x60 = 60.000 // 60x60 = 65.000