Secondo

föstudagur, 20. ágúst 2010

 

Karl R Lilliendahl sýnir mannlífsmyndir frá Ítalíu á Mokka. Sýningin stendur frá 20. ágúst til 23. september.


Á sýningunni eru svarthvítar ljósmyndir frá Ítalíu eftir Karl R Lilliendahl ljósmyndara. Secondo er sjöunda einkasýning Karls.


Titill sýningarinnar er vísun í sekúndubrotið sem það tekur að frysta augnablikið. Myndirnar eru teknar í ítölsku borgunum Lucca, Bologna, Feneyjum, Arcola, Ameglia og Fiumaretta.


Sýningin er sölusýning, þeir sem hafa áhuga að eigast verk af sýningunni hafi samband við Karl í síma 899 8880 eða með tölvupósti á karl.r.lilliendahl@me.com


Frekari upplýsingar um hann má finna á: www.karlrlilliendahl.com

 
 

next >

< previous